Lágmúli 4, 2. hæð
Sími 481 1000
Forsíða / Göngugreining

Hvað er göngugreining?

Í göngugreiningu er skoðað hvernig þú gengur, hvernig þú hreyfir þig og hvort það tengist vandamálum í stoðkerfinu – skekkjum í stoðgrindinni, vinnustöðu eða jafnvel skóbúnaði.

Göngugreining í Lágmúla 4

Reynsla, búnaður og verkstæði á einum stað

Við erum með reynslumesta starfsfólk landsins í göngugreiningum, einn fullkomnasta greiningarbúnað sem völ er á, fullbúið innleggjaverkstæði og mörg tæknilegustu innlegg sem eru í boði á markaðinum.

Við skoðum hvort verkir í baki, mjöðmum, hnjám eða fótum tengjast göngulaginu þínu – og bjóðum afbragðs þjónustu og frábærar vörur á sanngjörnu verði.

Ef þessi atriði eiga við ættir þú að kíkja í göngugreiningu

  1. 01Verkir í baki, sérstaklega ef meiri verkir eru öðru megin.
  2. 02Verkir í mjöðmum, sérstaklega ef önnur mjöðmin er verri.
  3. 03Verkir eða sýnilegar skekkjur í hnjám, ökklum eða hælum.
  4. 04Verkir, þreyta, doði, kuldi, hiti eða pirringur í tám, tábergi eða ofan á ristum.
  5. 05Grunur um mislengd ganglima – t.d. ef stytta þarf aðra buxnaskálmina meira en hina eða þú stendur meira í annan fótinn í hvíldarstöðu.
  6. 06Bólgur og eymsli undir iljum og/eða hælum (plantar fasciitis, hælspori).
  7. 07Verkur, bólga eða pirringur framan á leggjum (beinhimnubólga).
  8. 08Verkur í hásin (hásinabólga).
  9. 09Ef þig vantar ráðleggingar við val á hlaupaskóm og almennt við val á skóm.
  10. 10Mikið álag í íþróttum, sérstaklega ef um endurtekin meiðsli er að ræða.
  11. 11Mikil staða og ganga á hörðu undirlagi í vinnu.
  12. 12Aflaganir á fæti eða óeðlilegur vöxtur beina.

Búnaðurinn sem við notum

Fimm ólíkar mælingar sem saman gefa heildarmynd af fætinum, niðurstiginu og álaginu upp í líkamann.

1 / 5

RsScan V9 3D þrýstiplötur

Plöturnar eru með 4.096 nema og framkvæma 500 þrýstimælingar á sekúndu. Við skoðum álag á hæla og táberg, hvernig álagið dreifist um fótinn í skrefinu, hvort það sé of mikið út á jarkann eða á innanverðan fótinn, hvort meiri þyngd sé á öðrum fætinum og hvort fóturinn sé flatur eða ristin há.

Börn í göngugreiningu

Almennt er miðað við að börn séu orðin þriggja ára, hætt með bleyju og farin að hlaupa um. Við skoðum það sama og hjá fullorðnum auk hreyfanleika liða – mislengd er skoðuð ef barnið er með verki í baki, mjöðmum eða nára.

Enginn er of gamall

Það kemur okkur enn á óvart hvað við getum gert mikið fyrir fólk sem er komið af léttasta skeiði. Stundum getum við fært álagið af svæðinu sem veldur óþægindum yfir á svæði sem veldur minni einkennum – eins og að fara með bílinn í ballanseringu eftir dekkjaskipti.

Endurkoma innan 6 mánaða

Allir sem koma í göngugreiningu eiga kost á endurkomu. Þá er skoðað hvort breytingar hafi átt sér stað og innleggin skoðuð í þeim skóm sem verið er að nota. Þeir sem mælast með mislengd ættu að koma eftir u.þ.b. 3 mánuði.

Fullkomið innleggjaverkstæði

Í Lágmúlanum er verkstæði þar sem íþróttainnleggin eru búin til og gerðar allar viðgerðir, viðbætur og breytingar á skóm og innleggjum.

Kynntu þér innleggin
Innleggjaverkstæðið í Lágmúla

Bókaðu göngugreiningu

Göngugreining fyrir 17 ára og eldri tekur 30 mínútur. Tímapantanir einnig í síma 481 1000.

Bóka tímaSjá verðskrá