Reynsluboltar í göngugreiningum
Eigendurnir Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir sjá um göngugreiningarnar. Saman hafa þau tekið yfir 80.000 manns í göngugreiningu, afhent yfir 100.000 innlegg og selt yfir 200.000 pör af skóm.

Lýður B. Skarphéðinsson
Íþróttafræðingur og sérfræðingur í göngugreiningum
Sá reynslumesti í göngugreiningum á Íslandi. Hefur verið með göngugreiningar fyrir Stoðtækni Gísla Ferdinandssonar, séð um greiningar fyrir Össur og Flexor og frá 2010–2023 séð um greiningar fyrir Göngugreiningu undir Fætur toga. Lýður hefur skrifað um skóbúnað í tvær bækur og verið í viðtölum í sjónvarpi og útvarpi sem sérfræðingur í greiningum, innleggjum og skóm. Footbalance sérfræðingur í innleggjum frá Finnlandi.
Elva Björk Sveinsdóttir
Íþróttafræðingur og sérfræðingur í innleggjum
Hefur unnið fyrir Stoðtækni Gísla Ferdinandssonar og frá 2010 verið með greiningar og smíðað innlegg fyrir Göngugreiningu. Hefur smíðað og pússað tugi þúsunda para af innleggjum og er algjör sérfræðingur á því sviði. Footbalance sérfræðingur í innleggjum frá Finnlandi.
Saga Göngugreiningar
Áratuga reynsla af greiningum, innleggjum og skóm.
- ÁðurLýður og Elva starfa bæði hjá Stoðtækni Gísla Ferdinandssonar. Lýður sér einnig um greiningar fyrir Össur og Flexor.
- 2010 – 2023Lýður sér um greiningar fyrir Göngugreiningu undir Fætur toga og Elva er með greiningar og smíðar innlegg.
- Frá 2023Lýður og Elva reka Göngugreiningu í nýrri og glæsilegri þjónustumiðstöð að Lágmúla 4, með fullbúnu innleggjaverkstæði.

Göngugreining á landsbyggðinni
Við ferðumst um landið og erum með göngugreiningar á 12 stöðum á landsbyggðinni.
Ferðirnar eru auglýstar 2–3 vikum áður en lagt er af stað. Hringdu í okkur í síma 481 1000 og við bætum þér á hringilista svo við getum haft samband næst þegar við verðum nálægt þér.
Bókaðu göngugreiningu
Göngugreining fyrir 17 ára og eldri tekur 30 mínútur. Tímapantanir einnig í síma 481 1000.