Lágmúli 4, 2. hæð
Sími 481 1000

Eftir þínum fæti og niðurstigi.

Í göngugreiningu skoðum við hvernig þú gengur og hvort verkir í baki, mjöðmum, hnjám eða fótum tengist göngulaginu. Svo aðstoðum við þig við val á skóm frá Asics, Hoka og Brooks og smíðum innleggin á eigin verkstæði í Lágmúla 4.

 13.990 kr. · 30 mínúturLágmúli 4, 2. hæð
ÞrýstiplatanRsScan V9 · 4.096 nemar · 500 mælingar á sek.
Lítill þrýstingurMikill
Hæll29%
Miðfótur14%
Framfótur og tær57%

Sýnidæmi. Álagið rúllar frá hæl, eftir jarkanum og fram á táberg og tær.

Hvar finnur þú fyrir?

Verkir í baki, mjöðmum og hnjám geta átt upptök sín í fótunum. Veldu svæði og sjáðu hvað við skoðum og hvað getur hjálpað.

BakMjaðmirHnéLeggirHásinHæll og ilTábergStóra tá

Hæll og il

Bólgur og eymsli undir iljum og/eða hælum – plantar fasciitis eða hælspori. Verkurinn er oft verstur á morgnana.

Vörur sem geta hjálpað

Svona fer göngugreiningin fram

Einn fullkomnasti greiningarbúnaður sem völ er á – og reynslumesta starfsfólk landsins í göngugreiningum.

Allt um göngugreiningu
1

Þú bókar tíma

Á Noona eða í síma 481 1000. Greiningin tekur 30 mínútur.

2

Við mælum

Þrýstiplötur, hlaupabretti með upptöku, 3D fótaskanni, hallamál – og hendurnar.

3

Ráðgjöf og lausnir

Skór sem henta, sérgerð innlegg, þrýstisokkar eða stuðningshlífar eftir þörfum.

4

Endurkoma

Innan 6 mánaða skoðum við hvort breytingar hafi átt sér stað og lagfærum innleggin.

Þrjár gerðir af sérgerðum innleggjum

Öll innlegg eru smíðuð og lagfærð á fullkomnu innleggjaverkstæði okkar í Lágmúla.

Bera saman innlegg

Afgreiðslutími sérgerðra innleggja

Dagar frá göngugreiningu þar til innleggin eru tilbúin.

Höggdempandi innlegg21.990 – 24.990 kr.
7–14 dagar
Footbalance Medical17.990 – 24.990 kr.
0–3 dagar
3D prentuð innlegg39.990 kr.
10–20 dagar
05101520 dagar
Innlegg smíðuð á verkstæðinu í Lágmúla

Höggdempandi innlegg

Úr polyurethane, sama efni og er í miðsóla margra hlaupaskóa. Hönnuð í samvinnu við þýska innleggjafyrirtækið Hema.

21.990 – 24.990 kr.

Footbalance Medical

Hituð og mótuð að fætinum – 100% sérgerð. Elva og Lýður eru með Footbalance Medical réttindi og mega vinna með innleggin og breyta eftir þörfum.

17.990 – 24.990 kr.

3D prentuð innlegg

Phits innleggin hlutu fyrstu verðlaun á ISPO, stærstu íþróttasýningu í heimi.

39.990 kr.

Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir

Reynsluboltar í göngugreiningum

Eigendurnir Lýður og Elva sjá sjálf um greiningarnar. Saman hafa þau tekið yfir 80.000 manns í göngugreiningu, afhent yfir 100.000 innlegg og selt yfir 200.000 pör af skóm.

Bæði eru íþróttafræðingar, sérfræðingar í göngugreiningum og Footbalance sérfræðingar í innleggjum frá Finnlandi. Frá 2023 hafa þau rekið Göngugreiningu í Lágmúla 4.

Um okkur
Lágmúli 4

Verið velkomin í Lágmúla 4

Þjónustumiðstöðin er á 2. hæð, fyrir ofan Miklaborg fasteignasölu.

 
Mánudaga – fimmtudaga10.00 – 18.00
Föstudaga10.00 – 16.00

Landsbyggðin: Við ferðumst einnig um landið og erum með göngugreiningar á 12 stöðum. Hringdu í 481 1000 og við bætum þér á hringilista.

Bókaðu göngugreiningu

Göngugreining fyrir 17 ára og eldri tekur 30 mínútur. Tímapantanir einnig í síma 481 1000.

Bóka tímaSjá verðskrá