Fóturinn er eins og spenntur bogi þannig að maður stendur aðallega í hæl og tær. Það sem heldur boganum uppi er sinabreiða sem festist í tærnar að framan og hælbeinið að aftan.

Í hvert skipti sem maður stígur í fótinn kemur álag á hælinn sem getur verið allt að tuttuguföld líkamsþyngdin. Álagið dempast af fitupúða undir hælbeininu og sinabreiðunni.

Við langvarandi mikið eða rangt álag geta orðið skemmdir á sinabreiðunni og festingu hennar á hælbeinið – tognun, smásprungur og að lokum beinmyndun þar sem sinin festist í hælbeinið. Þarna getur myndast lítið beinhorn sem kallast hælspori.

Einkenni

Óþægindin lagast í hvíld en eru vanalega mest á morgnana þegar farið er á fætur. Ef þrýst er undir hælinn er það mjög sárt. Oft kemur hælspori ef hællinn er skakkur, sérstaklega ef mikið álag er á hörðu undirlagi í langan tíma og skóbúnaðurinn er ekki góður.

Hvað er til ráða?

Mestu máli skiptir að koma í veg fyrir að hælspori myndist strax og einkenni um óeðlilegt álag gera vart við sig. Þá þarf að minnka álagið og gera teygjuæfingar sem strekkja á kálfavöðvum og sinabreiðunni.

  • Höggdempandi hlaupaskór.
  • Sérgerð innlegg með úrtaki fyrir hælsporann.
  • Viðeigandi æfingar, einkum teygjur.

Árangur skurðaðgerða er slæmur og reynt er að forðast þær í lengstu lög.