Finnur þú fyrir verkjum í hnjánum, sérstaklega þegar þú hreyfir þig eða eftir að hafa setið lengi? Ef hnéverkurinn er bráður skaltu tala við fagfólk sem getur greint vandann.
Hlauparahné (Patellofemoral Pain Syndrome) fylgir oftast daufur sársauki í kringum hnéskelina. Þó að það geti stafað af erfða- eða byggingargöllum er í mörgum tilfellum hlaupa- eða göngulagið ástæðan. Ójafnvægi eða lítill vöðvastyrkur getur valdið óþarfa álagi á annað eða bæði hnén.
Liðkandi æfingar
Hreyfiteygjur eru ein algengasta leiðin til að koma í veg fyrir verk í hnjám og eru góðar þegar þú ert að jafna þig eftir meiðsli. Þær bæta liðleika, auka hreyfisvið og minnka líkur á meiðslum.
Styrktu vöðvana í kringum hnén
Hnébeygjur, framstig og staða á öðrum fæti byggja upp rassvöðva, lærvöðva og kálfavöðva. Gerðu æfingarnar þrjá daga í viku, þrjú sett af 10–15 endurtekningum – án lóða þar til þú ert tilbúin(n) fyrir þyngdir.
Veldu réttan skóbúnað
Góð höggdempun, stöðugur sóli og góður stuðningur við hæl skipta mestu máli. Ef þú ert með skakka hæla eða ökkla þarftu skó með stuðningi að innanverðu, og ef skekkjan er mikil þarftu göngugreiningu og innlegg með réttum stuðningi.
Sérgerð innlegg
Sérgerð innlegg eru hönnuð fyrir þitt fótlag og niðurstig og geta minnkað álag upp í hné, mjaðmir og bak.
Ekki hunsa sársauka
- Sársauki er viðvörunarmerki – taktu hann og bólgu alvarlega.
- Ekki hunsa það ef þú verður haltur.
- Ef sársaukinn varir lengi eftir bráð meiðsli skaltu hafa samband við lækni.


