Plantar fasciitis kemur þegar sinabreiða iljar – sem festist í hælbeinið að aftanverðu og í tábergsliðina að framanverðu – bólgnar og verður aum, oftast við hælinn.

Orsakir

Orsökin er oftast lélegur skóbúnaður, fótlag, umframþyngd og of mikið álag á hörðu undirlagi. Högg eða slæm lending úr hæð getur myndað bólgu. Skakkir hælar og/eða ökklar auka líkur á plantar fasciitis.

Einkenni

Algengasta einkennið eru verkir undir ilinni, sérstaklega á innanverðum hælnum. Verkurinn er verri þegar byrjað er að hreyfa sig, svo sem á morgnana, og getur minnkað yfir daginn eða við upphitun. Að ganga berfættur eða í skóm með lítinn stuðning getur aukið sársaukann.

Hvað er hægt að gera?

  • Forðastu athafnir sem auka sársaukann og minnkaðu tímann sem þú eyðir á fótunum.
  • Berðu ís á svæðið til að draga úr bólgu og sársauka, nokkrum sinnum á dag í 15–20 mínútur í senn.
  • Notaðu höggdempandi skó sem veita góðan stuðning við iljarbogann. Forðastu háa hæla, flip flops og skó með lélegan stuðning og dempun.
  • Teygjuæfingar fyrir sinabreiðuna, hásin og kálfavöðva geta linað sársauka.
  • Notaðu sérsmíðuð höggdempandi innlegg með góðum stuðningi við iljarbogann. Footbalance innleggin og 3D innleggin okkar eru löguð að fætinum.
  • Sérstakir plantar fasciitis sokkar veita góðan stuðning undir ilina og upp við hásinina.
  • Nudd með bolta eða nuddbyssu undir iljarbogann hjálpar.