Vöðvunum í fótleggnum er skipt í þrjú hólf sem sterkar vöðvahimnur halda saman. Við síendurtekið, mikið eða rangt álag getur myndast bólga í vöðvafestingum á sköflungnum, algengast á neðanverðum og innanverðum sköflungi.
Orsakir beinhimnubólgu
Hlaup á hörðu undirlagi, röng staða á ökklum, hnjám eða mjöðmum og lélegur skóbúnaður. Farið er of hratt af stað í æfingar eða þær auknar of mikið.
Lausnir
Allir sem finna fyrir beinhimnubólgu ættu að koma í göngugreiningu, því þar er meðal annars skoðað hvernig þungi dreifist um fótinn í niðurstigi og hvort skekkjur séu í hælum, ökklum eða hnjám. Fyrsta meðferð er ávallt kæling. Nauðsynlegt er að vera í góðum skóbúnaði og það hjálpar að hlaupa eða ganga með þrýstihlíf eða í þrýstisokkum. Reyndu að hlaupa á mismunandi undirlagi, t.d. grasræmunni meðfram malbikuðum stígum.
Hásinabólga
Hásinin er stærsta og sterkasta sin líkamans, mynduð af tveimur stærstu kálfavöðvunum, og tengist hælbeininu. Veikasti hluti hennar er u.þ.b. 3 cm ofan við festuna á hælbeininu. Við mikið og/eða rangt álag getur myndast bólga sem eykst oftast rólega. Ef skekkja er í hæl eða ökkla er hásinin viðkvæmari.
Lausnir við hásinabólgu
- Göngugreining og innlegg sem rétta af skekkjur í hæl/ökkla, með hækkun undir báðum innleggjum.
- Góðir skór með góða höggdempun, góðan stuðning og minnst 8 mm dropp frá hæl að tábergi.
- 6–8 mm gelpúðar í skó sem innlegg komast ekki í, s.s. inniskó og spariskó.
- Þrýstihlífar eða þrýstisokkar við göngur og hlaup.
- Draga úr hlaupum og hoppum – fara frekar í sund og hjóla. Forðast brekkur og fjallgöngur.
- Meðferð hjá sjúkraþjálfara samhliða notkun á innleggjum.


