Beinhimnubólga er skilgreind sem bólga og/eða slit í vöðvafestum við sköflunginn. Einkennin geta komið fram við innan- eða utanverðan sköflung og í slæmum tilfellum báðum megin. Einkennið er verkur við sköflunginn sem kemur oft fram við álag.

Hvað veldur beinhimnubólgu?

Beinhimnubólga er álagsmeiðsli sem stafa af síendurteknu álagi í hlaupum, hoppum og jafnvel göngu. Stundum myndast mikið snúningsátak á sköflunginn í gegnum skrefið sem eykur hættuna. Mjög hætt er við beinhimnubólgu þegar álag er aukið snöggt eða mikið.

Lausnir

  • Höggdempandi skór með stuðning sem hentar þínu fótlagi, niðurstigi og undirlagi.
  • Sérgerð innlegg sem rétta af skekkjur, auka stuðning og höggdempun.
  • Þrýstihlífar og þrýstisokkar styðja við vöðvann og minnka víbring við niðurstig.
  • Nudda eða rúlla með nuddbyssu eða nuddrúllu fyrir upphitun og betri endurheimt.
  • OOFOS heilsusandalar minnka álag á fætur eftir áreynslu.
  • Kæling eftir álag – að hámarki 20 mínútur í senn og frekar oftar.

Í kálfanum eru 11 vöðvar í fjórum hólfum og hann er sá vöðvahópur sem er lengst frá hjartanu. Það er því gríðarlega mikilvægt að hita vel upp fyrir átak. Byrjendur fá oft beinhimnubólgu því algengt er að farið sé of geyst af stað. Skynsamlegt er að leita til sjúkraþjálfara til að meta styrk og jafnvægi vöðva.