Flatfótur er einnig þekktur sem plattfótur. Iljarboginn flest út þegar þrýstingur er settur á hann og þegar fólk stendur snerta iljarnar gólfið.
- Getur komið fram þegar iljarboginn þróast ekki rétt á barnsaldri. Meiðsli, slit vegna aldurs og ofþyngd geta líka valdið flatfæti.
- Flatfótur getur verið án einkenna, en ef hann veldur sársauka og takmarkar það sem þú vilt gera er rétt að kíkja til okkar.
- Flatfæti fylgir oftast skakkur hæll/ökkli og einkennin eru oft í hælnum og/eða iljarboganum.
- Sum smábörn eru með sveigjanlega flatfætur, þar sem boginn sést þegar barnið stendur á tánum en hverfur þegar það stendur í fæturna. Börn vaxa oft upp úr því.
- Iljarboginn getur fallið eftir meiðsli í ökkla eða áralangt slit, oftast vegna skekkju sem ágerist með aldrinum.
- Áhættuþættir eru offita, meiðsli á fæti, liðagigt, öldrun og sykursýki.
Flestum með flatan fót og skakka liði líður betur með sérgerð innlegg.


