Hallux valgus lýsir sér þannig að það er kúla við tábergslið stóru táar, áunnin en með vissum erfðaþáttum. Algengast er hjá konum upp úr miðjum aldri, en sést einnig hjá körlum og jafnvel unglingum.
Orsakir eru margar, t.d. aflögun fótar og óhentugir skór. Við sjáum oft að þegar álagið er út á jarkann þola 2.–4. tábergsliðurinn ekki þungann og ýta stóra liðnum út. Stóra táin skekkist í átt að hinum tánum og það myndast beinhnúður og bólga sem nuddast í skó.
Meðferð
- Hlaupaskór eru til í breiddum og með mjúka yfirbyggingu. Við getum sett sérgerð innlegg í þá eða tábergspúða á upprunalega innleggið.
- Götuskór með teygjanlegri yfirbyggingu – við breytum upprunalegu innleggjunum eða setjum sérgerð innlegg.
- Spelkur og táskiljur varna því að tærnar nuddist saman.
- Næturspelka réttir úr tánni á meðan þú sefur.
- Skósmiður getur víkkað skó yfir hnúðnum.
Ef þú hefur prófað sérhæfðan skóbúnað, sérgerð innlegg, spelkur og sjúkraþjálfun og ert enn verulega verkjuð/verkjaður má íhuga aðgerð.


