Morton’s neuroma er þykknun eða bólga í vefnum í kringum taugina á milli tánna, oftast á milli annarrar og þriðju táar. Bólguhnúðurinn virðist aðallega koma við ertingu á tauginni, stundum vegna þrýstings frá föllnum iljarboga eða áverka.
Venjulega eru ekki sjáanleg einkenni. Þess í stað upplifa margir tilfinningu eins og þeir séu með lítinn stein í skónum, brennandi verk undir tábergi eða ofan á ristinni sem getur leitt fram í tærnar. Stundum fylgir náladofi eða dofi í tánum.
Hvað hjálpar?
- Tábergspúði og stuðningur undir ilina með sérsniðnum innleggjum.
- Tábergspúðar í sandala, inniskó og spariskó.
- Skór sem eru breiðir yfir tábergið svo ekki þrengi að bólguhnúðnum.


