Hvað er tábergssig?
- Tábergsbein falla niður og valda verk, sviða og/eða þreytu, doða, náladofa, hita eða kulda fram í tær.
- Tær eða táliðir þrýstast upp við göngu eða hlaup.
- Bólga og verkur í tábergi, sérstaklega undir stórutáarlið og undir 2. og 3. tábergslið.
- Einkenni oft eins og að „ganga á smásteinum“.
Ástæður
- Með aldrinum síga tábergsliðir niður, tábergið verður flatara og fitulagið undir því þynnist.
- Há rist orsakar oft stífan fót og aukið álag á hæl og táberg.
- Slæmir skór á hörðu undirlagi – flatir, þunnbotna, gamlir, támjóir og háir hælar.
- Yfirþyngd og íþróttir með miklu álagi á táberg, s.s. stökk og hlaup.
Meðferð
- Sérgerð höggdempandi innlegg með innbyggðum tábergspúða og góðum ilstuðningi.
- OOfos tveggja laga sandalar, höggdempandi og með góðum stuðningi undir ilina.
- Kæling, hvíld og hálega hjálpa til skemmri tíma.
- Skiptu út gömlum og mikið notuðum skóm fyrir stöðuga og höggdempandi skó.
- Við setjum tábergspúða í alla skó – líka á þunn einföld innlegg sem má færa á milli skóa.