Við aðstoðum þig

  • Ráðleggjum hvað skal hafa í huga við val á hlaupaskóm, gönguskóm, götuskóm, vinnuskóm, sandölum og inniskóm.
  • Mælum með stuðningsvörum, s.s. þrýstisokkum, hitahlífum og spelkum ef þarf.
  • Mælum með æfingum eða teygjum ef það á við.
  • Getum bent á hvort aðrir meðferðaraðilar gætu hjálpað, svo sem sjúkraþjálfari, kírópraktor, nuddari eða læknir.

Sérhver fótur er einstakur

Engir tveir fætur, ekki einu sinni þínir eigin, eru eins. Eins og fingrafar er hver fótur einstakur, með sína eigin lögun og útlínur.

Fróðleikur um fætur

  • Fóturinn inniheldur 26 bein, 33 liðamót og meira en 100 vöðva, sinar og liðbönd.
  • 1/4 af öllum beinum mannslíkamans eru í fótunum.
  • Annar fóturinn er yfirleitt stærri en hinn.
  • Um 20–30% jarðarbúa eru með tá nr. 2 lengri en stóru tá.
  • Þegar hællinn lyftist frá jörðu bera tærnar helming líkamsþyngdar.
  • Fótur 12 ára barns hefur náð um 90% af fullorðinslengd sinni.
  • Að standa er erfiðara en að ganga – við notum fáa vöðva í lengri tíma.
  • 75% manna upplifa fótavandamál einhvern tíma á ævinni.
  • Meðalmanneskja gengur um fjórum sinnum í kringum jörðina á ævinni.